Fræðslufundur: Sáttamiðlun í nágrannadeilum
Aðalfundur Sáttar verður haldinn þann 20. mars 2019 kl. 17:00. Fundurinn fer fram í Beckmannsstofu á Bókasafni Kópavogs.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi, í samræmi við 8. gr. laga félagsins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Fjármál félagsins. Ársreikningur kynntur og borinn upp til samþykktar
- Lagabreytingar. Ekki eru á dagskrá lagabreytingatillögur af hálfu stjórnar, en félagsmenn geta sent inn lagabreytingatillögur allt að tveimur vikum fyrir aðalfund.
- Stjórnarkjör. Kosið verður um tvö sæti í stjórn, en félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnarkjörs fram að aðalfundi með því að senda póst á satt@satt.is.
- Ákveða árgjöld félagsmanna
- Önnur mál
Stjórn mun einnig kynna fyrir félagsmönnum nýjan bækling um sáttamiðlun sem félagið hefur gefið út.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Kveðja,
Stjórnin
Tengt efni