Skip to content
Sátt
Félag um sáttamiðlun
  • Heim
  • Sáttamiðlun
    • Dæmisögur
    • Sáttamiðlun og barnalögin
  • Sáttamiðlarar
    • Finna sáttamiðlara
  • Greinar og fréttir
  • Heim
  • Sáttamiðlun
    • Dæmisögur
    • Sáttamiðlun og barnalögin
  • Sáttamiðlarar
    • Finna sáttamiðlara
  • Greinar og fréttir

Fræðslufundur: Sáttamiðlun á vinnustöðum – Hvenær, hvernig og hvers vegna?

8. október, 2018Fréttir

Sátt stendur fyrir fræðslufundi næstkomandi fimmtudag, 11. október 2018

Hvar: Salurinn Bakki, Menningarhúsinu Gerðubergi, 111 Reykjavík

Hvenær: Frá kl. 17-18 á fimmtudag, 11. október 2018

Sérstakir gestir: Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir, Fræðslu- og jafnréttisfulltrúi BHM og Guðríður H. Baldursdóttir, fyrrum mannauðsstjóri hjá Festi. Lilja Bjarnadóttir sáttamiðlari hjá Sáttaleiðinni stýrir fundinum.

Hvað: Jóhanna mun veita innsýn inn í mikilvægi þess að taka á ágreiningsmálum á vinnustað, m.a. til þess að bæta andrúmsloft á vinnustað og koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar s.s. kulnun í starfi. Guðríður mun veita innsýn inn í það hvenær rétt sé að grípa inn í samskiptaerfiðleika á vinnustað út frá sjónarhóli mannauðsstjórans og Lilja mun fjalla um hvernig hægt er að nýta aðferðafræði sáttamiðlunar til þess að grípa inn í ágreining og hvernig slík sáttamiðlun fer fram. Hvatt verður til umræðna og spurninga úr sal.

Fyrir hverja: Sátt býður hjartanlega velkomna alla þá sem hafa áhuga á að fræðast meira um hvenær, hvernig og hvers vegna við getum notað sáttamiðlun á vinnustöðum til þess að leysa ágreiningsmál og deilur.

Skráning fer fram hér *Ókeypis aðgangur*

 

Deila þessu efni
FacebookTwitterGoogle+Pinterest
Tengt efni
Aðalfundur Sáttar 2019
20. febrúar, 2019
Fræðslufundur: Sáttamiðlun í nágrannadeilum
25. nóvember, 2018
Aðalfundur Sáttar 2018
22. febrúar, 2018
Stjúpblinda í sáttamiðlun?
8. janúar, 2018
Sáttamiðlun – Hvað virkar best?
26. nóvember, 2017
Sáttamiðlun í mannauðsmálum – fræðslufundur
23. október, 2017

Find us on:

FacebookMailWebsite