Aðalfundur Sáttar 2019
Stjórn Sáttar býður til aðalfundar félagsins, sem haldinn verður þann 22. mars kl. 17:30
Fundað verður í salnum Marina, 2. hæð Tryggvagötu 11, 101 Reykjavík.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi, í samræmi við 6. gr. laga félagsins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Fjármál félagsins. Ársreikningur kynntur og borinn upp til samþykktar
- Lagabreytingar
- Stjórnarkjör
- Ákveða árgjöld félagsmanna
- Önnur mál
Kjósa þarf í þrjú sæti í stjórn, en félagsmenn geta boðið sig fram til stjórnarkjörs fram að aðalfundi með því að senda póst á satt@satt.is.
Undir liðnum önnur mál verður kynnt og rædd spennandi tillaga stjórnar til framgangs sáttamiðlunar á Íslandi.
Tengt efni