Aðalfundur Sáttar 2019
Sáttamiðlun vinnur hægt og bítandi á og skemmtilegt að sjá að námskeiðin hjá nýjum formanni í Háskóla Íslands eru vel sótt.
Stjórn Sáttar vinnur að mörgum verkefnum fyrir veturinn og í mörg horn að líta. Svo virðist sem vinna síðustu ára sé líka að skila sér út í samfélagið, enda sáttamenn duglegir að breiða út boðskapinn.
Ákveðið var að fella niður fræðslufundi sem hafa hingað til verið hluti af vetrarstarfi Sáttar, en leggja þeim mun meiri áherslu og vinnu í stærri viðburði á vegum félagsins.
Tengt efni